föstudagur, júní 22, 2007

Thad var vel lidid a morgunrutinuna okkar i morgun thegar modirin attadi sig a thvi ad thad hafdi ekki heyrst eitt islenskt ord sidan farid var fram ur, svo hun sneri ser ad dotturinni og sagdi: hey thu att ad tala islensku vid mommu thina

Dottirin horfdi med undrunarsvip a modirina og svaradi: But mommy I am Guyanese!

Held ad thad se komin timi a sma ferd til Islands

miðvikudagur, júní 20, 2007

Elsku pabbi
til hamingju pabbi doktor
vona að þú verðir duglegur doktor
sakna þín og vona að við sjáum þig fljótlega
á meðan sendi ég þér fingurkoss mmmmm
þín Elín Katla

miðvikudagur, júní 13, 2007

Algjör sveppur



Það er eins og að við höfum flutt inn í hús hennar... hvað sem hún hét nú aftur hexið í Andrésblöðunum. Risastór karta hefur búið um sig í skógrindinni okkar, leðurblökur fljúga um rjáfur og nú eru galdrasveppir farnir að vaxa upp úr gólfinu í svefnherberginu okkar eins og sjá má á meðfylgjandi mynd.

The Henryssons might as well have moved in with the Adams family. A giant toad lives in the corridor, bats are flying around the fan in the living room and now mushrooms are popping up in our bedroom.

mánudagur, júní 11, 2007

Fjölskyldan fer að týnast af landi brott

Fyrir nokkrum árum síðan komu margir færustu náttúruvísindamenn heimsins saman í Guyana til að kortleggja vistkerfi landsins. Helsta niðurstaða þeirra var að hér svitnaði fólk ekki milli 3:50 og 4:55 á nóttunni. Annars svo til stanslaust. Nokkrir dagar í húsi án loftkælingar hefur dregið okkur að sömu niðurstöðu. En það fer þó að styttast í þessu öllu. Henry er að leggja síðustu hönd á nauðvörn sína og svo hverfur hann af landi brott. Elín Katla og Regína fara um mánaðarmótin. Elín Katla gaf sér tíma til að ræða við mömmu sína um dagskrána framundan þrátt fyrir leiðinda hita sem hefur verið að hrjá hana. Viðtalið er hér að neðan...

fimmtudagur, júní 07, 2007


Þessi skrítla kom í blaðinu í dag. Það eru ekki bara við sem gerum grín að hugmyndinni um að Guyanabúar geti skipulagt hryðjuverk - þeir gera það sjálfir. Sendiherra Bandaríkjanna er annars vænsta blók sem vann lengi í sendiráðinu í Reykjavík.
Even the Guyanese cannot but laugh at the idea of a Guynaese terrorism mastermind...

mánudagur, júní 04, 2007

Dagbókarbrot

Sunnudagur, 19:45, Búið að taka upp úr öllum kössum og töskum í nýju íbúðinni. Elín Katla býður góða nótt og skríður undir flugnanetið. Foreldrarnir taka ekki eftir því að nokkrar flugur sleppa með undir. 20:13, Henry og Regína ræða fréttir dagsins og velta því fyrir sér hvort Guyanabúarnir sem hafa verið dregnir fyrir rétt vegna fyrirætlana um að herja á JFK flugvöll verði dæmdir. Málinu hlýtur að vera vísað frá eftir að dómarinn áttar sig á að setning getur ekki bæði innihaldið sögnina að skipuleggja og nafnorðið Guyanabúi án þess að vera þversagnarkennd. 20.35, leðurblaka flögrar um stofuna. 20: 52, Henry og Regína flýja undir flugnanet. Mánudagur 6:30, gríðarleg rigning hefur vakið fjölskyldumeðlimi. 6:35, allir gleðjast yfir því að íbúðin skuli ekki vera á jarðhæð. 6:38, fjölskyldan áttar sig á vatn lekur ekki bara inn með gólfi heldur einnig í gegnum þak og glugga.

The citizens of Guyana can not believe that one of their former parliamentarians has planned to blow up JFK. Surely there must be a mistake. There is no record of any person in a higher position in Guyana ever planning ahead. In fact, all this sorry affair reminds of the old definition of Hell: A place where the staff at JFK check you in, Guyanese tour operators plan the trip down and where you are greeted by Swiss entertainers. In other news, the Henryssons have realised that although a second floor flat brings one further away from the water on the ground it obviously brings one closer to the water falling from the sky. Furthermore, it most definitely brings one in closer contact to various nocturnal creatures with wings. The only such creature we did not see our first night in the new flat is the former lead singer of the Faces.

laugardagur, júní 02, 2007

Annar afmælisdagur



Henry varð gamall í dag. Flutningastúss náði ekki að skemma daginn þar sem mæðgurnar dekruðu við hann og svo voru vinir okkar svo sætir að stofna til óvænts síðdegiskaffis með tertu og alles hjá sér. Sá sem skreytti tertuna spurði víst hver væri uppáhaldslitur barnsins sem átti að fá hana. Þau svöruðu að 34 ára íslenskum heimspeking væri líklega sama hvernig nafnið hans væri á litinn. Við flytjum svo endanlega yfir í nýju íbúðina á morgun. Meðfylgjandi myndir eru úr henni.


The birthday season is still active. Henry turned old today. Thankfully, Regina and Elin managed to ease his pain until our friends sweetly hosted a surprise birthday party in his honour in the afternoon. We will move into the flat tomorrow. More picture might follow when we have settled in and if Elin (who incidentally thinks four year old girls should speak twice as loud as three year old) has not driven our landlord who lives downstairs absolutely bonkers.