þriðjudagur, febrúar 28, 2006

Heima er bezt


Jæja, jæja, fjölskyldan öll komin heim sæl og glöð enda höfum við öll verið að éta þrí- og frírétta og fræðst um heimsins gagn og nauðsynjar og haft bæði gagn og gaman af ýmist saman eða sitt í hvoru lagi. Foreldrarnir urðu vitni að the ‘Blizzard of 06’ þegar sjálf New York minnti helst á Fljótin í Skagafirði vegna snjóþunga á meðan Elín Katla upplifði það að fara í peysu í Flórída. Hér í Guyana gerðist auðvitað ekkert á meðan nema hvað bófi reyndi að brjótast inn í húsið okkar, en vörðurinn vann fyrir kaupinu sínu og á bófanum. Erfiðlega gengur þó að sannfæra verðina um að halda búpeningi fyrir utan húsið og höfum við því kallað til meindýraeyða í fyrramálið til þess að losa okkur við krókódílinn í baðkarinu og kyrkislönguna í fatahenginu. Að öðru leyti bíður okkar ekkert nema hversdagslífið. Og félagslífið reyndar því allt í einu eru við orðin svo sjóuð hérna að við erum farin að taka á móti nýju fólki og sýna þeim staðinn.


Well, well the Henryssons are back in town with all the extra pounds life in the US of A pounds on you. Elin Katla was indulged at her grandparents resident in Florida while her parents indulged in everything New York has to offer. Not even the ‘Blizzard of 06’ (they have name for everything up there) stopped Henry and Regina from thoroughly enjoying a Manhattan lifestyle they think is the real deal but is probably a bit soapy. While we were away our guard caught a burglar, but missed the fauna that now resides in all the dark corners of the house. Statistically our house should be save from burglary the next 178 days. It is just a shame how embarrassingly bad Guyanese burglars are in statistics.




fimmtudagur, febrúar 02, 2006

Jæja, það verður víst minna um blogg næstu vikurnar. Við erum öll á leiðinni til Bandaríkjanna, en höfuðstöðvar Sameinuðu þjóðanna ætla að njóta nærveru Regínu í febrúar. Við munum reyndar koma við í Flórída hjá foreldrum hennar, en þar ætlar Elín Katla svo að dveljast í góðu yfirlæti á meðan foreldrarnir venja sig aftur við kaffi og kulda í íbúð sem þau hafa leigt af helstu kántrýstjörnu Kana á meðan hún er við upptökur í Nashville. Elín Katla er reyndar orðin svo spennt að hún benti á brjóstið á sér i gær og sagði að hún finndi fyrir spenningnum þar! Aðrir fjölskyldumeðlimir, þ.e. Henry, Regína og sveppagróðurinn sem þekur fötin, töskurnar og skóna okkar eftir bleytu undanfarinna mánaða, eru einnig spenntir. Við þurfum að leggja af stað frá heimili okkar í svartamyrkri í nótt og gera reglurnar víst ráð fyrir því að það kalli á vopnaða fylgdarsveit. Þetta verður því í fyrsta sinn sem við ferðumst með svoleiðis lið í eftirdragi. Hver veit nema við sigum þeim á dýralífið í ruslatunnunni okkar áður en við leggjum í hann.

This might be the only February blog from Guyana. The Henryssons shall be touring the States the rest of the month. Elin Katla will hold the fort with her grandparents in Florida while her parents experience the glamour and busyness of NY in an apartment rented from a proper American Country Singer while she does some recording in Nashville. Well, the busyness, as well as the western style, will actually start in the early hours tomorrow when we leave for the airport. It seems that a medium sized army is needed to transport us there when it’s dark. Perhaps Regina will keep one regiment in order to help her tackle the shoe stores on 5th Avenue in the coming weeks.