fimmtudagur, júní 22, 2006

Þá fer að koma að því að við mæðgur yfirgefum Guyana i bili og segjum bless við hita, raka, myglu í fötum og skóm, rigningu (vonandi!) og kakkalakkana sem bjóða okkur góðan daginn á hverjum morgni. Þetta er búið að vera þónokkuð löng bið fyrir heimasætuna og hún var hálfsvekkt í morgun að það væri ekki komin föstudagur.
En hún vill senda smá skilaboð til ömmu og afa og allra þeirra sem hafa ekki hitt hana síðastliðna átta mánuði - bara svo allir þekki hana örugglega aftur:):

Elsku allir

Ég er búin að stækka um 7 sentimetra


Ég er ennþá með krullurnar mínar og mjúku kinnarnar

Uppáhaldið mitt – númer eitt, tvö og þrjú – er ennþá matur, matur og aftur matur – hvaða matur sem er – þó ég vilji alveg sleppa við gulrætur og salat. Ég er varla búin að kyngja síðasta kvöldmatar bitanum þegar ég er byrjuð að plana hvað ég muni taka með mér í skólann daginn eftir til þess að borða í kaffitímanum og hádegismatnum. Og þegar ég kem heim úr skólanum og mamma og pabbi spyrja hvað ég hafi gert í dag, þá byrja ég alltaf að tala um hvað ég borðaði!

Mér finnst rosalega gaman að syngja. Ég er búin að læra fullt af nýjum lögum í skólanum mínum hér í Guyana. Svo hef ég einnig bætt í íslenska lagasafnið mitt og uppáhalds íslensku lögin mín um þessar mundir eru: a,b,c,d, Gutta vísur, Ara vísur og Fyrr var oft í koti kátt.

Mér finnst mest gaman að lita og teikna og hef klárað heilan helling af litabókum á undanförnum mánuðum og svo veit ég hvar pabbi geymir hvítu blöðin og mér finnst mjög gaman að fá nokkur lánuð hjá honum. Við teiknum líka mikið í skólanum og eru veggir eldhússins okkar og skrifstofunnar hennar mömmur þaktir listaverkum eftir mig.

Ég púsla einnig ennþá mikið og er oft í mömmó, þá gef ég dúkkunni minni henni Ísabellu (sem ég skírði sjálf í höfuðið á henni frænku minni) að borða og læt hana pissa í koppinn og svæfi hana svo.

Ég er alveg svakalega spennt að koma til Íslands og hitta ykkur öll – ég tala mikið um alla og hvern ég ætla að hitta - bæði menn og dýr:) Ég er mjög spennt að fá að komast á hestbak – tala um það á hverjum degi – hjá ömmu Gígí í sveitinni og hlakka mikið til að fara í heitupottana hjá ömmum og öfum.

Sjáumst í næstu viku!
Ykkar Elín Katla


fimmtudagur, júní 15, 2006
















Þessi varð að fá að fljóta með - EK teiknaði þessa mynd af mömmu sinni áður en við lögðum af stað í leikskólann í morgun - Mamma og kisa út í rigningunni - smá regnhlíf að reyna að hlífa mömmu og sólin að reyna að brjótast í gegn

This one just had to go as well - EK did this one of her mother this morning before going to school - Mommy and a cat in the rain - mummy under a small umbrella and the sun trying to brake through the clouds










Við mæðgurnar erum bara búnar að hafa það ágætt þrátt fyrir að húsbóndan á heimilið vanti. Okkur fer óðum fram í að ‘smassa’ moskítóflugurnar og hjálpumst að að sópa kakkalökkunum á morgnana. En við viðurkennum að okkur hlakkar til að fá hann heim afturJ Hans var líka sárt saknað í gærkvöldi þegar húsmóðirin á heimilinu fór í sinn fínasta kjól og óþægilegustu háhæluðu skóna sem hún á (en þeir voru einu skórnir sem komu til greina við kjólinn að mati Elínar Kötlu og henni var ekki haggað) og fór í voða fínt boð hjá breska sendiherranum að fagna afmæli Betu drottningar. Þar var að finna alla elítu Guyana eins og hún leggur sig og cream de la cream af diplómötum í landinu og svo allir þeir bretar sem búa hér – stór samkunnda haldin út í garði á ráðherrabústaðnum – undir tjaldi (þar sem rigningartímabilið er enn í algleymingi) og það var blankalogn svo glamúr lúkkið á fjöldanum fór hratt versnandi. Andlitsmálningin sem ég hafði reynt að farða ofaná svitann áður en ég fór var fljót á bak og burt og hárið klístrað við ennið. Hita og svita mollan var með ólíkindum. Karabískt 'steel band' lék þessa fínu tónlist og spilaði auðvitað 'rúgbrauð með rjóma á' við mikinn fögnuð viðstaddra.

The female part of the Henryson household have been having a good time although they greatly miss the other half. They have started mastering the technique of ´smashing´ mosquitoes and help each other to sweep up the cockroaches in the mornings. The other half was also greatly missed when Regina went to celebrate the Queens birthday with the Guyanese elite, the Brits and the cream de la cream of the diplomatic community. The party was very glamorous – Elegant – was the dress code. However due to immense humidity and heat the guest became less and less glamorous as the evening unfolded. Make-up somehow just disappeared and the hair got stuck to the forehead - and you could see the gentlemen who were forced to were suits circulating around the few standing fans. Rather comic - and then we had a steel band playing THE song and everybody cheered.

Í byrjun júní var sumarhátíð í skólanum hennar Elínar Kötlu þar sem hægt var að taka þátt ýmsum leikjum og vinna smá glaðninga – og Elín Katla auðvitað sópaði að sér verðlaunum.

Elin Katla had a summer fair at her school earlier in the month, where those pictures were taken.





















Elin Katla ásamt kennurunum sínum Nancy og Delisa

Teacher Nancy and Delisa

sunnudagur, júní 11, 2006

Nú er aldeilis eitthvað að gerast hjá fjölskyldunni, eftir rólegheit undanfarinna daga. Henry á leið yfir Atlandshafið á morgun þar sem rannsóknarstörf bíða hans og svo skila mægðurnar sér eftir tvær vikur. Reyndar er það stórfurðulegt og skemmtilega þversagnarkennt að Lundúnarferðin gerir það að verkum að hann missir af boði í afmæli Betu drottningar, en gullslegið boðskort datt hér inn um lúguna í vikunni. Elín Katla á dálítið bágt með að sætta sig við að faðir hennar þurfi að yfirgefa hana, en hann hefur sannfært hana að ef allt gengur að óskum mun hann loksins geta svarað henni hvers vegna himininn er blár, hví hundarnir hafa hár, hve gömul er sólin og hvort guð sendi jólin. Kannski að British Library eigi meia að segja bækur sem sýna fram á hvar sólin sefur um nætur og hvers vegna sykurinn er sætur. Annars hefur helgin bara farið í þetta vanalega. Trinidad naut heldur betur stuðnings okkar í gær og svo spiluðum við blak í dag. Regína er orðin svakalegur smassari. Með þessu áframhaldi verður hún orðin atvinnumanneskja á ströndum Brasilíu áður en sumarið er liðið.

Henry is leaving for London tomorrow and thereby, somewhat paradoxically, missing an invitation to the Queen’s birthday party (admittedly the one hosted here in Guyana with the birthday girl unable to attend as well). It will not be until around the middle of July the family can enjoy each other’s company again here in Bel Air Springs. We had a full fry up yesterday as we joined the English crowed cheering on their team yesterday morning. Elin Katla had so much fun (mainly because of the unlimited amount of bacon and sausages on offer) so we stayed on and cheered for our neighbors Trinidad and Tobago.

föstudagur, júní 02, 2006

Afmæliskaka fyrir pabba henrysson

Afmælistíðin er enn í fullum gangi. Nú er það Henry sem þarf að velta fyrir sér hvers vegna guð lætur hann eldast meira með hverju árinu. Mæðgunum tókst þó að lina þjáningar hans um stund í morgun með því að færa honum pakka og morgunmat í rúmið. Elín Katla hafði samið kort sem var stílað á ,,Pabba Henrysson“. Alltaf formleg stúlkan. Henry og Regína hafa einnig verið bundin við að lina þjáningar Guyanabúa undanfarnar vikur með því að koma að, með mismunandi hætti að vísu, samræðum fólks sem hafa verið í gangi víðs vegar um landið að undanförnu. Á þessum fundum fær venjulegt fólk tækifæri til þess að segja sjálft hvað hefur misfarist við stjórnun landsins og hvað er hægt að gera betur. Ein ástæða þess að þetta verkefni er í gangi er sú að kosningar eru í nánd með öllu því báli og þeim bröndum sem tilheyra suður-amerískum kosningum. Brúnin á fólki hefur þó lést aðeins eftir að við höfum getað sagt þeim aðeins frá borgarstjórnarkosningunum í Reykjavík og niðurstöðum þeirra. Fólk sannfærist endanlega þar með að vegir, og framsókn, lýðræðisins séu órannsakanlegir. Annars er bara allt blautt að frétta. Nei, ekki í diplómatískum skilningi. Hér eru bara hellidembur alla daga. Ennþá eru engin flóð svo við getum bara samglaðst gróðrinum. Sérstaklega ofan í skónum og á skyrtunum okkar. Og í dag er afmælisdagur. Kannski að bleytan verði örlítið meira dipló í tilefni dagsins.

The birthday season is still upon us. This time it is Henry who is the victim. Fortunately, Regina and Elin Katla managed to alleviate his sufferings by bringing him breakfast and presents in bed this morning. Elin Katla wrote the card, which was addressed to ‘Daddy Henrysson’. How formal can a girl who just had her third birthday, or the ‘turd’ birthday as they say in the Caribbean, be? In other news, it’s wet. The rainy season is still in full force. But today is birthday and we might as well add a little diplomatic wetness into the mix. Cheers.