föstudagur, október 27, 2006

Happy Diwali




Nú í dag er akkúrat ár liðið síðan við fluttumst til landsins sem hefur gefið heiminum Gloriu Gaynor, Eddie Grant og Trevor Philips. Guyana hefur hingað til farið vel með okkur, enda er hita- og rakastigið hér eins og í útungunarvél. Þó höfum við einu sinni náð að upplifa það að hitastigið var það lágt að okkur fannst ástæða til að vera í skyrtu að morgni. Nú og svo er ekki eins og við höfum haldið til hérna í Geogetown allan tímann. Elín Katla hefur flogið 24 sinnum milli landa síðastliðið ár. Forfrömunin nær ekki aðeins til flugpunkta. Hún er farin að sletta orðum eins og ‘delicious’ við kvöldverðarborðið. Og búin að bæta rappkafla á ensku inn í sönginn um Kalla litla kónguló. ‘Who is this spider... who... who’ heyrist þá í dömunni.

Tonight it is exactly one year since we came to this country that has given the world the talents of Gloria Gaynor, Eddie Grant and Trevor Philips. We are all in a luscious shape, which should not come as a surprise given that our existence here is similar to being cultivated in a greenhouse. However, we have not been in Georgetown the whole time. Elin Katla has 24 times flown between countries in the last year. Her cosmopolitanism does not only regard air miles. Recently she has started to use words such as ‘delicious’ at the dinner table. Furthermore, she has even started to create her own music. Most noteworthy is her rap version of Inchy Winchy Spider. ‘Who is this spider… who… who…’ she MCs with all the appropriate movements. Yes, she will survive.

fimmtudagur, október 26, 2006


Nú árið er næstum liðið, þ.e. fyrsta árið okkar í Guyana, í aldanna skaut. Henry rétt náði að setja saman hinn besta mögulega dag diplómataspúsunnar á þriðjudaginn og fór í golf, tennis og óbærilegt kokteilboð hvert á eftir öðru. Þetta voru líka síðustu forvöð fyrir hann. Eftir helgi hefst vinna að verkefni sem hann hefur tekið að sér hérna. Það mun líklega rétt klárast fyrir jólaheimferðina. Regína er alltaf jafn bisin eins og sjá má á meðfylgjandi mynd, þar sem hún vísiterar raunvísindastofnun Háskóla Guyana með forsætisráðherranum. Elín Katla er því sú eina sem auðgar andann þessa dagana með því að byrja hverju einustu setningu á ,,akkúrju“. Foreldrarnir geta ekkert annað gert en að svara sem best þau geta og vonað að þessu muni linna. Í öðrum fréttum er það helst að félagslífið hér gengur á með miklum blóma og héldum við bæði fjöl- og góðmennt matarboð um síðustu helgi.

As our first year here in Guyana fizzes out Henry managed to create the best possible day for the diplomatic spouse. In the same day he played both golf and tennis, and attended the worst possible cocktail party. Actually, he left it as late as possible, as he will hand in his DS certificate next week in order to take on his new career as an Implementation Consultant. Regina, on the other hand, is always as busy. For example, last week she visited the Institute of Applied Science of the University of Guyana with the Prime Minister. As one will notice on the photo, it is not all the glass and stainless steel one normally expects of such institutes. In other news all is well. Elin Katla begins every sentence with a ‘why’ and her parents take part in every social gathering possible. If nothing is on, they invite people over. The more the merrier.

fimmtudagur, október 19, 2006


Þá er fjölskyldan aftur komin til lands þar sem dánarfregnir eru lesnar upp í útvarpi. Yndislegri dvöl í Flórída lokið þar sem Regína lagaði tennisforgjöfina til muna og Henry stórbætti bakhöndina í golfi. Allir áttu þar sína forhönd í Hornafjarðarmanna. Þegar Elín Katla var spurð í gær hvað hefði verið skemmtilegast við túrinn svaraði hún: ,,borða morgunmat, sofa, borða kvöldmat, synda, fara á ströndina, horfa á Dóru og borða hádegismat“. Foreldrarnir hafa svo náð sér eftir rifrildið hvort þau ætti að leigja blæjubíl til að keyra niður til Miami. Það mátti svo ekki tæpara standa að Regína næði hingað aftur. Núna er hún stödd inni í skógi að dansa hókípókí í nafni hópeflis með skrifstofunni. Á meðan fær Henry frið til að sjá eftir blæjubílnum.

We are back from Florida with much-improved handicap in tennis, slicker backhand in golf and quite few impressive forehands in The Dude from Hornafjordur. Elin Katla dined, lunched, swam and sunbathed like there was no tomorrow, but here we are – back in Guyana listening to the obituaries in the radio. Well, some of us are. Regina is in the jungle as we speak in an office bonding exercise.

laugardagur, október 14, 2006

Erum þessa daganna í vellystingum og hugguleg heitum hjá ömmu og afa í Flórída - alveg yndislegt eins og alltaf. Búið að spila tennis, golf, versla, versla og versla smá meira og lokka eitt stykki snák af pallinum og út í skóg aftur (eða réttara sagt út á golfvöll!) - vorum ekkert alltof spennt að hafa hann með okkur í sólbaðinu. Skáluðum í gær fyrir því að það eru heil 6 ár síðan tekið var við lyklunum af Bjarnahúsi.

We are on a mini-break 'again' in Florida with grandma and grandpa - so nice like always. We have played tennis, golf, gone shopping and a bit more shopping and Henry bravely tackled a snake that wanted to share the sunbathing spot with us on the patio. We find it hard to believe but yesterday it were six years since we got the keys of this house - for Regina it is more shokking to realise it is whole six years since she finished SOAS.

sunnudagur, október 08, 2006
















Það er búið að vera mikið að gera í afmælisvertíðinni undanfarið þrátt fyrir að flensa hafi komið í veg fyrir að hægt hafi verið að fara í þau öll. Eitt afmælið varð þó að komast á blað en það var stórkostlegt sjóræningjaafmæli hjá hinum fimm ára Trevor. Foreldrarnir voru að undirbúa afmælið í 6 mánuði og var hver einasta mínúta af 3 klukktíma prógrammi skipulögð og mikið um props og verðlaun fyrir alla eftir hverja þraut. Elín Katla kom heim klyfjuð pökkum og pinklum úr afmælinu. Foreldrarnir tóku þátt í herlegheitunum og held ég að Johnny þurfi nú að fara að vara sig!
The Birthday season has been on a full swing over the past few weeks. One of the most 'over the top' amazing party was the Pirates of the Caribbean party held for the five year old Trevor. The 3 hour party was planned to the minute and filled with fun games and goodies. The parents had been planning this big event for the past six months and had kept shipping companies busy importing pirates stuff from the USA.








Skemmti-íþróttadagur í School of the Nations í Laugardalnum þeirra Guyana búa - Elín Katla stóð sig afarvel í kanínuhoppinu.

Fun-Sportsday in the School of the Nations in the National Park - Elin Katla did very well at the Bunny Hop.










Nýja barnapían hennar Elínar Kötlu - Karen og dóttir hennar Lisella

Elin´s new babysitter - Karen and her baby girl Lisella

miðvikudagur, október 04, 2006

Súpermaðurinn gefst ekki upp!


En auðvitað hlýtur það að verða Kári Súpermaður sem mun vinna að lokum - eða hvað haldið þið?

þriðjudagur, október 03, 2006

Elín Katla og strákarnir


Á meðan Kári situr heima og bíður eftir ,,stelpunni sinni" er Elín Katla að gera foreldra sína gráhærða yfir úrvali af tilvonandi tengdasonum.

Þetta er hann Lúkas. Foreldrar hans eru frá Tékklandi og Malasíu. Hann er mikið prúðmenni.











Þetta er hann Daan. Hann er hollenskur. Hann og Elín Katla leiðast á hverjum degi inn í skólann. Þau bæði líta út og haga sér eins og systkini. Hann á svo svo sem ekki séns enda er hann í yngri deildinni.











Þetta er hann Ewan. Hann er franskur. Eins og svo margir fransmenn við íslenskar meyjar, þá á hann það til að láta Elínu Kötlu fara að gráta. Hann er bara meira spennandi fyrir vikið.










Þetta er hann Francesco. Hann er ítalskur. Hann er mikill mömmustrákur. Elínu Kötlu er alveg sama.

Kári þarf að hafa sig allan við um jólin.