Við höfum fundið litla en ákaflega huggulega íbúð til að hinkra í yfir sumarmánuðina á meðan gólfið á neðri hæðinni er tekið í gegn. Flytjum inn yfir helgina. Við getum þó geymt eitthvað af dótinu okkar hérna á efri hæðinni. Elín Katla lætur ekki bugast og er bara spennt yfir tilstandinu. Hún kemur syngjandi heim úr skólanum eins og sést á meðfylgjandi myndbandi. Nú er bara að venja sig við dýralífið sem bíður okkar á nýja staðnum. Það eru engin net fyrir gluggum. Rimlarnir munu að vísu kannski halda úti flestum arnar- og kattartegundum, en skordýr og fljúgandi rottur munu bara fá að kenna á skordýraspreyinu.
Fortunately, we have managed to find us a cozy little flat in town, into which we shall hopefully move next weekend. The flat is less flashy than the house we are in now and will most definitely do a worse job keeping out the fauna of Guyana, but what can one do? Anyway, the most important thing is that Elin is stoical about the whole thing and keeps coming home from school like a character from Sound of Music. Hence the video link below...
miðvikudagur, maí 30, 2007
fimmtudagur, maí 24, 2007
Vatnið er að fara - ekki vandræði okkar
Þegar við keyrðum út götuna okkar í dag sem í gær lá undir Lake Bel Air gat Elín Katla ekki stillt sig og söng: 'The water is gone, the water is gone, the water is goooooone awaaaay.' Lagfæringar á húsinu munu þó standa yfir a.m.k. fram í ágúst. Við erum því komin aftur út á þann hála ís sem er húsnæðismarkaðurinn í Georgetown. Meira síðar.
The water is gone for the most part. The house is a mess. The Henrysson's are back in the househunting buisness. Fun.
miðvikudagur, maí 23, 2007
Hananú!
Það sem mátti helst ekki gerast hefur gerst. Sólarhringsrigning setti hverfið okkar á flot. Og það sem verra er, húsið okkar líka. Núna er stofan, eldhúsið, búrið og þvottahúsið ein daunill tjörn þar sem drukknaðir kakkalakkar fljóta um á milli moskítóflugna. Fiskar og snákar gæða sér svo á öllu góðgætinu.
sunnudagur, maí 20, 2007
Afmælisveislan tókst prýðilega!
fimmtudagur, maí 17, 2007
Elín Katla 4 ára!
Haldiði ekki bara að litla stelpan sé orðin 4 ára. Foreldrarnir eiga bágt með að trúa því. Og þó; það er ekki eins og lítið hafi gerst á þessum fjórum árum. Elínu Kötlu hefur m.a.s. tekist að vera aldrei tvisvar í sama landi á afmælisdaginn sinn. Við höfum haldið upp á þá í þessari röð: 1. Holland Park, London, 2. Lynghaga 10, 3. University Park, Flórída og 4. Georgetown. Það er ómögulegt að vita hvar verður haldið upp á næsta afmælisdag en veðbankar hallast helst að þremur borgum, þ.e. Ouagadougou, Krung Thep eða Phnum Penh. Það má líka vel kenna þessa forfrömun hjá barninu. Við morgunverðarborðið minntist hún á það við móður sína að það væri bara dáldið langt síðan hún var síðast í New York og stakk upp á borgarferð hið fyrsta. Einnig er hún farin að ruglast aðeins í tungumálunum. Hún kom með glæsilegt abstrakt málverk heim úr skólanum um daginn. Þegar foreldrarnir spurðu hvað þetta væri svaraði hún stolt ,,líf“. Enginn átti orð yfir listrænu innsæi barnsins og túlkunarhæfileikum. Elín Katla skildi hins vegar ekkert í þessum látum. Hún hafði oft áður litað laufblað í skólanum...
P.s. og auðvitað virka umferðarljósin ekki lengur. Þau náðust þó á meðfylgjandi mynd.
While the one set of traffic lights in Georgetown broke down, our little girl turned 4. We cannot really pretend to be surprised about her age. It takes some time after all to be all over the place. Elin has even managed to celebrate her four birthdays in four different countries: England, Iceland, USA and Guyana. The bookies are busy calculating the odds where her fifth birthday is going to take place. Three cities seem to be the favorites right now: Ouagadougou, Krung Thep and Phnum Penh. Place your bet now please. In the meantime, Elin is in a dire need of a break back in Iceland. Her Caribbean English is becoming quite rich. First we were not that worried. Slight difference in pronouncation could not be that bad. But after one and a half year in Guyana one cannot wonder but whether ‘to tink’ is not a totally different practice than ‘to think’. Thankfully, we are through celebrating her ‘turd’ birthday.
P.s. og auðvitað virka umferðarljósin ekki lengur. Þau náðust þó á meðfylgjandi mynd.
mánudagur, maí 14, 2007
The rigndi látlaust fyrstu helgina í maí og allt virtist ætla á kaf. En viti menn. Síðan þá hefur varla komið dropi úr lofti en í staðinn höfum við þurft að þola óbærilegan hita og raka. Það mun enginn taka eftir því þegar það byrjar að rigna aftur. Allir eru rennblautir og rænulausir hvort sem er. Sitt hvað gerist þó þrátt fyrir mókið. Það hafa til dæmis verið sett upp umferðaljós á nokkrum gatnamótum í Georgetown. Og það virka m.a.s. ein þeirra! Lakari fréttir voru þó innbrot í höfuðstöðvar SÞ. Tölvubúnaði og kexi stolið. Ákaflega óhuggulegt allt saman. Sérstaklega þar sem þetta á að vera ein öruggasta bygging í bænum. En þó frábært að enginn varð fyrir þjófunum. Afmælisveisla sem Elínu Kötlu var boðið í skyggði þó á flest annað þessa helgina, enda boðið upp á ævintýraferð á hestvagni um hverfið. Nú getur Elín Katla ekki beðið eftir sinni veislu um næstu helgi og foreldrar hennar geta ekki sofið því þau vita að sú veisla má síður vera síðri. Hugmyndir einhver – plís?????How often does one see stuff from science fiction become a reality? Well, we just witnessed one such instance here in Georgetown. No, it was not an UFO that greeted us last Friday afternoon when driving from town, but something infinitely less likely. Yes, a working set of traffic lights! Blimey! Even more shocking news was the burglary into the UNDP headquarters over the weekend. Fortunately, no one was working or in the building at the time. Everybody is still in shock nevertheless. If thugs get into one of the most secure building in town – what next? The weekend was however not all doom and gloom. Elin was invited to a birthday party on Sunday which turned out to be pretty good fun. Unfortunately for her parents, the hosts at the party raised the standard pretty high for
fimmtudagur, maí 10, 2007
Loksins tókst okkur að setja inn video - smellið á örina
Páskadagur í Suriname
Hattadagur í skólanum - Páskaskemmtun
Foreldrarnir fóru á foreldrafund með kennaranum hennar Elínar Kötlu í gærmorgun. Hún þykir náttúrlega stjörnunemandi, þrátt fyrir að tala bæði hátt og mikið. Það er fyrirgefið þar sem ekkert bendir til annars heldur en að hún hlusti vel á kennarann sinn. Að minnsta kosti er hún ákaflega dugleg að endurtaka allt sem kennarinn segir við samnemendur sína. Foreldrunum fannst einnig gott að fá smá yfirsýn hvað er verið að leggja áherslu á í skólanum þessa dagana. Börnin eru til dæmis farin að læra að lesa þriggja stafa orð sem flest virðast vera yfir eitthvað sem þau eiga að passa sig á: ,,rat”, ,,car“, ,,hot“ o.s.frv. Foreldrarnir eru ekki of hrifnir af þessu. Í fyrsta lagi er ekki víst að börnin átti sig á hættum þegar þeim fylgir ekki skilti með orðinu á. Í öðru lagi er alltaf hætta að börn telji að því lengri og flóknari sem orðin eru þá sé það sem þau standa fyrir því minna hættulegt. Það verður þannig til dæmis ekki nokkur leið að skýra það út fyrir Elínu Kötlu að hún þurfi að passa sig á að sýkjast ekki af epulopiscium fishelsoni. En í bili er það hvort sem er afmælið hennar í næstu viku sem á hug hennar allan. Það er þegar búið að panta hoppukastala og húllahringi, og þær mæðgur eru sveittar við að hanna bæði barbí- og dórutertur. Regína fékk þó örlitla hvíld frá þeim hugleiðingum í gærkvöldi þar sem henni og Henry var boðið í flenni boð á vegum Evrópusambandsins til þess að halda upp á einhvern hálfgerðan ,,þjóð“hátíðardag þess. Þar gafst Henry og Regínu enn einu sinni tækifæri til þess að útskýra fyrir fólki að: 1. jú, Ísland er hluti af Evrópu 2. nei, Ísland er ekki meðlimur Evrópusambandsins 3. ... best að sleppa þessari umræðu. Kosningar heima á Íslandi í nánd og ekki ástæða til að nota bloggsíðu tæplega 4 ára barns í áróðursskyni. Kjósið heil.
When Elin Katla is not lost in planning her birthday next week and the celebrations that will take place the weekend thereafter, she is pretty busy learning new things at school. She is for example learning to read three letters words these days, e.g. ‘rat’, ‘car’ etc. One wonders how many exciting three letters words the teacher can come up with. Anyway, the excitement is all about her next week’s birthday now. The parents have already booked the bouncy castle and Regina is pretty busy designing both a Barbie and a Dora birthday cake. The parents fortunately got a short break from the planning duties last night as the EU hosted a big gala to celebrate some big day in the European calendar – well, EU’s 50th ‘birthday’. Finally, Henry got an opportunity to use his white dinner jacket here in Guyana.
When Elin Katla is not lost in planning her birthday next week and the celebrations that will take place the weekend thereafter, she is pretty busy learning new things at school. She is for example learning to read three letters words these days, e.g. ‘rat’, ‘car’ etc. One wonders how many exciting three letters words the teacher can come up with. Anyway, the excitement is all about her next week’s birthday now. The parents have already booked the bouncy castle and Regina is pretty busy designing both a Barbie and a Dora birthday cake. The parents fortunately got a short break from the planning duties last night as the EU hosted a big gala to celebrate some big day in the European calendar – well, EU’s 50th ‘birthday’. Finally, Henry got an opportunity to use his white dinner jacket here in Guyana.
miðvikudagur, maí 02, 2007
Það var ekki við öðru að búast. Nýtt rigningartímabil er mætt á staðinn í tilefni maímánaðar. Eftir aðeins eins dags rigningu eru skurðir að fyllast og kyrkislöngur og kráarrottur á fullri ferð á milli þeirra. Sem betur fer náðist að halda upp á gamla góða veðrið og sveitta stuttermaboli á sunnudaginn þegar yfirkona Alþjóðabankans hérna hélt líka svona ljómandi skemmtilega grillveislu í garðinum hjá sér. Elínu Kötlu fannst mikið til koma. Í garðinum var sundlaug og kjötið virtist óþrjótandi. Mest finnst henni samt koma til húsbóndans á heimilinu, en hann er fyrrverandi leynilögga á Spáni sem eftir nokkur áberandi mál varð ekki lengur mjög leynilegur og var því sendur á eftirlaun fyrir þrítugt. Hann notaði tækifærið til að fara í trúðaskóla í Barcelona og kann núna heldur betur að skemmta litlum stelpum með alls konar fíflalátum.
O boy – yet another rainy season is upon us here in Guyana. Well, perhaps it does not matter anyway whether our T-shirts get wet from the inside or the outside. Fortunately, we got the opportunity in a barbecue party last Sunday at the residence of the diminutive Spanish head of the World Bank here in Guyana to say goodbye to the dry season. While we did our best to give toasts to her good fortune never been asked out by Mr. Wolfowitz, her husband (a Spanish policeman turned entertainer) stole the limelight with juggling and other clownish extravaganza. Elin Katla loved every bit of it. Not even a swimming pool and seemingly endless supply of meat could keep her away from him.
Gerast áskrifandi að:
Ummæli (Atom)
