föstudagur, ágúst 31, 2007

Til hamingju með afmælið afi Bjarni!


Elsku afi Bjarni, til hamingju með afmælið. 70 ára - vá! Ég vildi að ég gæti verið með þér í dag. Sjáumst fljótt. Þín Elín Katla

fimmtudagur, ágúst 30, 2007




Heima er best segir máltækið. Það á ekki alveg við þegar fólk hefur verið á Grenada og býr í Guyana. Hér er allt í hers höndum eins og vanalega. Við sluppum reyndar við slæm flóð á meðan við vorum í burtu. Og húsið okkar slapp í þetta sinn en vinir okkar fengu 30cm af vatni inn í stofu með öllu því dýralífi sem því fylgir. Flóðið var ekki einungis vegna rigningar. Slóðarnir sem áttu að hleypa vatni úr skurðunum á fjöru mættu ekki í vinnuna. Svo er bara hægt að giska hvaða slóðaskapur liggur að baki öðrum helstu fréttum eins og tíðu rafmagns-, vatns- og internetleysi í vikunni sem og flótta fjölda bófa úr einu helsta fangelsi landsins.

Home sweet home. Or whatever. Dear old Georgetown has greeted us back from our holidays with its unique brand of colonial charm and thigh moistening warmth. Fortunately, last weeks floods had receded when we returned (the houses of some of our friends let in more than 30 cm of floodwater) but blackouts, water shortages and prison breaks have all lifted our spirits this week. Elin Katla has not yet started school and thus spends her morning with her father at the coffee house playing cards, reading the New Yorker and listing to his lectures on pre-critical idealism and the relative benefits of espresso drinking. On the other front, Regina has realized that the Bob Geldof School of international aid is probably spot on. Hence, Bob’s First Rule of Working in Development (aka FRoWD): we all hate Mondays.

föstudagur, ágúst 24, 2007

Grenada



Fjölskyldan hefur notað mörg lýsingarorð um karabísku eyjarnar á undanförnum tveimur árum. Nú skrifum við það og segjum að Grenada stendur þeim fremst sem við höfum heimsótt í flestu. Þrátt fyrir að Grenada hafi ekki fjölbreytileika strandanna á Tóbagó, fjölda stranda á Antigua og evrópska andann á Martinique þá er hún í staðinn laus við svo ótalmargt sem angrar mann í sambandi við aðrar eyjar. Það virðist sem allir hafi lagst á eitt um að reisa við ferðamannaiðnaðinn eftir fellibylinn Ivan. Dvölin okkar hefur reyndar verið fremur tíðindalaus hérna á hinni svokölluðu kryddeyju (gælunafnið er einmitt mikið við hæfi - hér vaxa krydd í hverjum koppi og ekkert meira en múskat sem er notað í allt). Mest höfum við hangið á okkar hálfgerðu einkaströnd á milli þess sem við heimsóttum ávanabindandi veitingastaði. Helvíti mun fyrr frjósa en að slíkir staðir birtist í Guyana. En auðvitað misreiknuðum við okkur í mörgu. Það er til dæmis rigningartimabil hérna sem fór ekkert á milli mála. Verra var þó að þeir UNESCO bændur voru víst nýbúnir að velja hin sjö nýju undur veraldar og misstu því af sandkastalaframkvæmdum Elínar Kötlu á ströndinni.




It is without a hint of a doubt that we can declare that the island of Grenada - the so-called Spice Island - the spiritual home of the Spice Girls and the island that puts the 'm' into 'nutmeg' - is the most stunning and welcoming of all the Caribbean Islands the Henryssons have visited the last couple of years. Everything from Italian wine bars with the atmosphere of Cheers and all the drama of Melrose Place to coral reefs harbouring the cast of Finding Nemo is on offer. Even a couple of chronological mishaps did nothing to dampen our spirits. Next time we might choose a little bit more externally dry season. Furthermore, the Henryssons are not going to spend again a Herculean effort on the fine art of Sand Castle building only to find out that UNESCO has recently voted on the seven next architectual wonders of the world.

laugardagur, ágúst 18, 2007

Ef fólk smellir á meðfylgjandi link þá er víst hægt að sjá okkur fjölskylduna sóla sig á ströndinni í næstu viku...

Apparently, this weblink directs one to a LIVE videolink from the beach the Henryssons shall be staying at in Grenada.

http://www.laecottages.com/webcam/index.htm°

http://calabash.dnsdojo.net/view/index.shtml

föstudagur, ágúst 17, 2007



Þá fer Regína að pakka niður Gisele sandölunum sínum og halda til Grenada. Þetta er ströndin sem við verðum á. Namm. Reyndar var fellibylurinn Dean að ganga yfir þarna rétt hjá þannig að það gæti verið minna um pálmatré þegar við lendum. Ef við lendum. Flugsamgöngur í Karabíska hafinu eru brokkgengar þegar best lætur eins og lesendur þessa bloggs rennur kannski minni til. Það gæti tekið þær nokkra daga að jafna sig í sitt skipulega kaos eftir eitt stykki fellibyl. Hvað um það. Ferðasagan mun birtast hérna eftir rúmlega viku. Bestu kveðjur frá okkur öllum þangað til.

Regina is in the process of luggageing her Gisele Bundchen sandals, while the rest of the Henryssons pack their less glamorous beachwear. Yes, we are going to Grenada this weekend for a week! If we can make this holiday hurricane and flight disruption free it is going to be awesome. We are renting a cottage next to the Calabash Hotel, sharing the beach (see picture) and in short walking distance from the Hotel's Gary Rhodes run Michelin starred restaurant. Hurray! The saga of our Caribbean adventure will follow in due time.

sunnudagur, ágúst 12, 2007




The winter photo is taken at 1 in the afternoon in December 2006, the summer photo is taken at 1 after midnight in July 2007. Anyway, at the flickr link to the left we have added 22 reasons why we are moving to Iceland in few months time.

föstudagur, ágúst 10, 2007


Náttúruöflin eru eitthvað að stríða okkur hérna í Georgetown og spurning hvað við nennum að sitja undir þessu lengi í viðbót. Hér líða dagarnir annað hvort með óbærilegum hita eða ofsafenginni rigningu sem fengi Nóa til að teygja sig eftir sög og spýtu. Og talandi um ofsa. Henry og Regínu varð á að stíga á tærnar á því mikla undri sem er dr. Steve Surujbally, en hann er dýralæknir sem leiðir kosningaapparat landsins og er þar með einn valdamesti maður Guyana. Hann var spurningastjóri á pöbbaspurningakvöldi í vikunni þar sem Henry, Regína og liðsfélagar þeirra hikstuðu á spurningunni hver væri stærsta eyðimörk Evrópu. Svarið ,,Sprengisandur" var sett inn svona meira í gríni, en auðvitað var reynt að tuða örlítið þegar Steve hafnaði því svari, svona til þess að ergja þennan landsfræga besservisser. Hann var þó ekki meira en svo viss í sinni sök að hann vakti alla nóttina til þess að lesa sér til um úrkomu á Íslandi, eða svo sagði hann a.m.k. þegar hann hringdi í bítið morguninn eftir sigri hrósandi með þau tíðindi að auðn og eyðimörk væri sitthvað. (Hvar Steve komst yfir símanúmer Regínu fyrir klukkan 7 að morgni er okkur hulin ráðgáta!) Og enn um auðnir og náttúröfl. Litla fjölskyldan hefur ákveðið að notfæra sér skólafrí Elínar Kötlu og bregða sér fljótlega til Grenada í örlítið frí. Vesalings eyjan, sem okkur er sagt að sé þó enn mikil paradís, er ennþá að ná sér eftir fellibylinn Ivan sem jafnaði hana við jörðu fyrir nokkrum árum. Þeim veitir ekki af nokkrum túristadollurum til þess að rétta frekar úr kútnum. Eyjarskeggjar eru þó komnir vel á veg enda ýmsu vanir. Það er ekki svo ýkja langt síðan að Bandaríkjamenn ákváðu að sprengja strendur eyjunnar í tætlur í nafni lýðræðis og frelsis. Elín Katla mun áreiðanlega blómstra þarna þó varla verði hún eins blómleg og í íslensku sumri eins og sjá má á meðfylgjandi mynd.
Unfortunately, we cannot produce an English version of this blog as it mentions one Steve Surujbally, who is incidentally the type of guy who googles himself frequently and would not be amused by this particular anecdote. Well, the Henryssons might actually escape his ire as they are headed to Grenada for a short minibreak next weekend. More on that later. The picture of Elin Katla is from Iceland. We may soon add a few photos in order to explain our decision to move back...

mánudagur, ágúst 06, 2007



Doktorsvörnum og Íslandsheimsóknum er lokið í bili. Henry og Elín Katla hafa komið með íslenska þurrkinn og blíðuna hingað til Guyana og ekki annað að gera en að hefja niðurtalninguna í heimferð fjölskyldunnar í byrjun nóvember. Sem betur fer erum við komin aftur í húsið okkar sem er með nýlökkuð gólf og málaða veggi. Elín Katla þvertók fyrir að vera eins og niðursetningur í þessum salarkynnum og var ekki annað að gera en að kalla til klippi- og naglakonu til að gera hana sem prinsessulegasta.


Finally, the Henryssons are united in Georgetown in order to count down the few remaining months in the land of many waters. Princess Elin will fortunately have the opportunity of holding court at our Bel Air Residence until then, as Henry and Elin were greeted by a freshly painted and dried out house on their arrival last week. There are busy times ahead. There are surprisingly many things we still want to do on this Continent before November.