mánudagur, september 17, 2007

Henry joins the Circus



Regína skilaði sér frá New York eftir vel heppnaða ferð. Það mátti ekki seinna vera. Helgin var pökkuð með stórskemmtilegum dagskrárliðum. Hæst bar þó ferð í mexíkóskan sirkus sem er kominn í bæinn með tígrisdýr, gíraffa, trúða og hvað eina. Sú ferð mun verða lengi í minnum höfð hjá fjölskyldunni. Sérstaklega þar sem Henry var dreginn upp á svið til þess að hjóla á minnsta hjóli í heimi. Sem betur fer voru myndatökur bannaðar í tjaldinu, þannig að þetta verður honum ekki til ævarandi háðungar. Þetta fór þó svo með hann að hann lá í rúminu allan sunnudaginn. Sem var ekki hentugt þar sem við höfðum boðið Karen og börnunum hennar í sund. Regína stóð sig hins vegar sem hetja við að sjá um fimm ósynda einstaklinga.




Regina made it from NY just in time for Circo Suarez, which is in town these days all the way from Mexico. What could have been a routine entertainment became a full hilarity when poor Henry was hijacked on stage to try the world's smallest bicycle. There are unconfirmed news that local people who witnessed this event are still in shock from the side effects of uncontrollable laughter. Anyway, the Henryssons' ability to entertain Guyanese people runs infinitely deep and on Sunday Regina took Karen and her kids swimming at the Pegasus.

Engin ummæli: