
Rigningarskúrirnar hafa loksins stöðvast og í staðinn er tekið við hitastig sem lætur fólki finnast það dúðað í stuttermabolum. Fjölskyldan er svo sem ekki að svekkja sig á því enda er farið að styttast í annan enda dvalar okkar hér. Bíllinn er kominn í sölu og svo mætti lengi telja. Það virðist til dæmis ætla að takast að sjá Karen koma þaki yfir höfuðið áður en við förum. Á meðfylgjandi mynd er nýja húsið hennar. Áður bjó hún með þremur börnum sínum í kofa á sömu lóð. Af þeim kofa hefði lítill sómi verið á smíðavöllum ÍTR. Þar svipar flestum spýtum til þeirrar næstu. Gjarnan vildum við svo sjá hurð og glugga komast á sinn stað fyrr en seinna. Annars er Regína farin til New York á námskeið í nokkra daga. Elín Katla var alveg krossbit að mamma hennar þyrfti að læra meira. ,,Hva? Ætlar hún að verða meira fullorðin eða hvað?" var það eina sem barnið gat stunið upp.

Engin ummæli:
Skrifa ummæli