mánudagur, október 29, 2007






Fyndið. Við vorum að laga til í kringum okkur enda bara tveir dagar eftir í húsinu. Sáum þá aftan á SPRON dagatal sem var á leið í ruslið. Fyrir októbermánuð - okkar síðasta mánuð í Guyana - er nefnilega boðið upp á ágæta vísu eftir Stephan G. Stephansson: Þótt þú langförull legðir / sérhvert land undir fót / bera hugur og hjarta / samt þíns heimalands mót. Og við öll á leið heim. Héldum lokahóf á svölunum okkar á laugardagskvöldið. Annars er þetta bara að verða búið...











The Henryssons hosted a farewell-get-together on our balcony on Saturday night for our closest acquaintances. It turned out to be the most splendid fun. This might actually turn out to be our last blog from Georgetown. Our suitcases crave our attention right now until we shall leave at some ungodly early time on Thursday morning.

5 ummæli:

Olga sagði...

Gangi ykkur allt í haginn á þessu mikla og langa ferðalagi heim. Við munum skunda niður á bryggju með lúðra og fána þegar þið komið, þ.e. ef veður leyfir. Komið þið annars ekki með MS Gullfoss? (sjá fyrra blogg) ha...ha...ha...

Hlakka til að sjá ykkur,
Olga

Nafnlaus sagði...

Sæl og blessuð,

gaman að lesa um síðustu dagana ykkar í Guyana, greinilega margt að gerast og að mörgu að huga fyrir flutningana heim. Gangi ykkur vel og góða skemmtun á skemmtiferðaskipinu. Við sjáumst svo í stuði með jólaguði í desember. Knús frá Stokkhólmi,

Kidda & Co.

Helga Bára sagði...

Hæ hæ !

Það hefur verið gaman að fylgjast með lífinu og tilverunni á ykkar enda, og sérstaklega að lesa á milli lína og í þagnir ;-)

Góða langferð til Íslands og gangi ykkur sem allra best að þverfóta ykkur í vetrarfærðinni ....

Helga Bára

Olga sagði...

Maður bíður í ofvæni eftir að fá að sjá ykkur hérna á Fróni. Þessi atburður skákar nánast jólunum i spennu. Hvenær er heimkoma?

Olga frænka

Elin Katla sagði...

Lendum a fimmtudag! Thanksgiving:)