
Við eigum kannski eftir að sakna Guyana mikið eftir allt saman. Að minnsta kosti þegar við hugsum aftur til baka til ferða eins og þeirrar sem við fórum í um helgina. Við sigldum upp Essequibo fljótið í hús sem við höfðum leigt með þremur öðrum fjölskyldum. Húsið stendur inn í frumskóginum, en þar sem það er nálægt Bartika, sem er gullgrafarabær og síðasti útvörður ,,siðmenningar" í Guyana, þá má finna þar ýmis þægindi eins og rennandi vatn og rafmagn. Með í för voru sem sagt allir bestu vinir Elínar Kötlu og var stuðið stanslaust. Ewen hinn franski virðist ætla að hafa smá forskot á Francesco hinn ítalska í kærastatali Elínar Kötlu eftir helgina (hún er altént farin að tala um ,,þegar hún giftist Ewen" en ekki ,,ef"). Hin þýsk-ástralska Ella er þó í mestu uppáhaldi sem vinkona númer eitt. Miklu skipti svo á endanum að foreldrunum kom öllum ágætlega saman og hljómuðu fimm tungumál í belg og biðu um ganga hússins þessa eftirminnilegu helgi.
A Conradian journey up the Essequibo River over the weekend has the Henryssons really wondering about the relative merits of the Guyana experience. We had rented a house in the jungle with the three families of Elin Katla's best friends. And what a splendid weekend! In fact, we can hardly recall other such brilliant mini-break. How we managed to led this house evade us for two sticky years in Georgetown will be one of the lasting mysteries of our stay in Guyana. 
3 ummæli:
Engin ástæða til að örvænta. Þetta er bara næstum því eins og að fara í sumarhús BHM í Húsafelli allavega er skógurinn til staðar og heiti potturinn ;) Ég get svo talað við ykkur á íslensku, ensku og dönsku. Einnig gæti ég rifjað upp þá frönsku, hollensku og kínversku sem ég er búin að læra. No worries Olga frænka reddar málunum.
Munið að hér eru engar moskító, slöngur, kakkalakkar, kossageit, dengi hiti osfrv. bara fullt af fersku og svölu lofti, stöku húsflugur og kvefpestir.
Hlakka til að sjá ykkur á Fróni.
Björn Ásgeir langar að vita hvað strákurinn sem er við hliðina á Elínu Kötlu heitir og hvort hann er 4ra eins og hann?
BJÖRN ÁSGEIR (hann kvittaði sjálfur)
Hae Bjorn Asgeir
strakurinn heitir Ewan og atti fimm ara afmaeli thessa somu helgi
hlakka til ad sja thig a fostudaginn!!
knus Elin Katla
Skrifa ummæli