
Það sem vafðist helst fyrir okkur með að flytja til Guyana fyrir tveimur árum var hvaða áhrif það myndi hafa á Elínu Kötlu. Eins og sjá má á þessum tveimur myndum, sem eru teknar með tveggja ára millibili, þá ber ekki á öðru en þær áhyggjur hafi verið óþarfar. Hún virðist hafa dafnað. Hitt er verra hvernig við náum Guyanabúanum úr henni. Elín Katla hafði til dæmis ákveðið með vinkonu sinni í skólanum að þar sem vinkonan ætti hlý föt ofan í skúffu þá skyldi hún flytja með til Íslands. Næst þegar amma vinkonunnar kom í skólann þá vatt Elín Katla sér upp að henni og sagði: ,,Ok, Zalatoo is coming to Iceland with me, first we go to Florida, then with a big big ship to Iceland. She need plenty, plenty money. Please give she plenty, plenty money, girl. OK?"

Engin ummæli:
Skrifa ummæli